NÝJASTA
TÖLUBLAÐIÐ
Norska arkitektastofan Snøhetta með sýningu sjá myndband
26. janúar 2012

Norska arkitektastofan Snøhetta hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir byggingar sínar. Hún bar sigur úr bítum í alþjóðlegri samkeppni um gerð Bókasafnsins í Alexandríu og nýja Óperuhússins í Ósló; byggingum sem nú eru orðnar að þekktum kennileitum. Á 20 ára afmæli stofunnar árið 2009 var efnt til stórrar yfirlitssýningar í nýju byggingarlistardeildinni í Listasafni Noregs í Ósló og er úrval verka frá þeirri sýningu sýnt á Kjarvalsstöðum. Sýningin skiptist í átta hluta þar sem arkitektastofan og afrek hennar eru kynnt á fjölbreyttan og lifandi máta. Kongsberg Jazz festival Pavilion - Tubaloon
Kjarvalsstaðir.
Snøhetta - Arkitektúr, landslagshönnun, innanhússhönnun 14. janúar – 4. mars 2012
Nýjustu fréttir

Eldri tölublöð
Öll blöð í vefútgáfu

Netútgáfa. Samhliða prentaða blaðinu verður einnig hægt að nálgast netútgáfu af blaðinu á slóðinni www.landogsaga.is. Greinarnar verða bæði í pdf og HTML formi sem gerir þér til dæmis kleift að senda þær áfram og nýta í markaðsskyni. Netútgáfan verður ítarlegri og verður hægt að senda inn efni sem sett verður á vefinn, umfram það efni sem er í blöðunum. Þessi vefur mun síðan halda áfram að vaxa og dafna.