Tàpies – Mynd, líkami, tregi -- Kjarvalsstaðir.
19. mars 2012
Kjarvalsstaðir. 17. mars – 20. maí . Tàpies – Mynd, líkami, tregi
Á sýningunni getur á að líta málverk frá rúmlega sjö áratuga ferli katalónska listamannsins Antoni Tàpies. Tàpies var Katalóníumaður, fæddur í Barcelona árið 1923 en hann lést fyrir réttum mánuði síðan, þá 88 ára að aldri og er sýningin á Kjarvalsstöðum sú fyrsta sem opnuð er eftir andlát hans. Á sýningunni verða sýnd málverk frá rúmlega sjö áratuga ferli listamannsins, en hann er almennt talinn einn helsti áhrifavaldur í þróun málverksins á síðari hluta tuttugustu aldarinnar. Tàpies var undir sterkum áhrifum frá súrrealískum málurum á borð við Miro og Klee í upphafi ferils síns, en síðar meir þróaði hann sitt eigið myndmál með uppbyggðum myndfleti sem oft var ýfður upp með stöfum, tölum og táknum. Flest verka hans eru úr hversdagslegum hlutum, fundnu efni, mold, sandi, jarðvegi, þurrkuðu blóði og steinryki.